Boing, going home
Jæja. Þá er JavaOne búið í bili. Frábær ráðstefna að öllu leyti nema einu. Það kom upp vírus, nánar tiltekið, norovirus sem er í rauninni bara magaflensa. Það var send út tilkynning á gesti ráðstefnunnar í gærmorgun sem sagði frá honum; að flestir sem fengu vírusinn væru liggjandi með hita, magakrampa, gubbupest og fleira í 1-2 daga. Ég kom upp á hótel í fyrrakvöld, dauðþreyttur, ákvað að panta mér mat af veitingastaðnum á hótelinu, samloku með beikon og einhverju drasli. Ég fékk svona bullandi magakrampa, netið virkaði ekki á hótelinu þannig ég gat ekki séð tilkynninguna og kenndi samlokunni um, sem auðvitað var blásaklaus. Sem betur var það ekki alvarlegra en það hjá mér, ég gæti trúað að áfengið sem Google gaf í Guice sessioninu sínu um kvöldið hafi bjargað mér.
Annars er ekkert merkilegt í fréttum. Fullt sem ég þarf að koma frá mér um ráðstefnuna, ég er bara svo þreyttur að ég kem því ekki upp úr mér. Þetta er búin að vera lengsta vika sem ég hef upplifað í langan tíma og ég sé ekki alveg fyrir endann á henni strax þar sem ferðalagið mitt til Íslands er í heildina hátt í einn og hálfan sólahring, hlakka ekki mikið til þess.
Veit einhver um eitthvað skemmtilegt að gera í NY í 12 tíma stoppi?
