Monday, May 21, 2007

Olive oil ain't no virgin

Þá er maður byrjaður að vinna aftur.

Vinnudagarnir eru alltaf aðeins skemmtilegri þegar maður skimar yfir changesettin sem hrúgast inn yfir daginn og sér gullmola á borð við þetta:

   <session-config>
-    <session-timeout>120</session-timeout>
+    <session-timeout>3</session-timeout>
+    <!-- TODO: don't commit me!!! 3 minuite timeout? are you insane!!??"" -->
   </session-config>

Thursday, May 17, 2007

GEOFF52

Má ég kynna til sögunnar hann GEOFF52.

Geoff er gæddur einstökum sönghæfileikum sem hann leyfir alheiminum að njóta í gegnum Singshot.com. Singshot er eins konar kareókí á netinu þar sem fólk getur sent inn bæði söng og mynd, eins og Geoff vinur okkar, og slegið í gegn. Ég mæli með að fólk fylgist sérstaklega vel með Geoff þegar hann syngur, sérstaklega hreyfingum á höfuðsvæðinu og brosinu hans. Reynið líka að taka eftir dúllu hausahreyfingunum hans og brosi. Æðislegt.

Geoff segist vera 53 karlmaður. Veit nú ekki alveg með en hann hefur gefið út 379 lög á Singshot sem, já, hann má víst vera stoltur af.

Ég mæli með laginu sem ég læt fylgja hér með, það kemur mér alltaf í gott skap. Hvað ætli það sé langt þangað til hann kemur fram hjá Jay Leno?

Update: Geoff var að gefa út eitt lag í viðbót, á meðan ég skrifaði færsluna. He's a busy bee.

Tuesday, May 15, 2007

Jump they say

Stjórnarflokkarnir héldu velli og fengu 88.098 atkvæði gegn 88.111 atkvæðum stjórnarandstöðuflokkanna.

Glöggir lesendur sjá vonandi ósamræmið í ofangreindri staðreynd.

Er ekki kominn tími á að breyta landinu í eitt kjördæmi?

Lag dagsins á David Bowie.

Sunday, May 13, 2007

Dream on

Vei fyrir fyrsta blogginu!

Ég fékk hugljómun að fyrstu blog færslunni fyrir nokkrum dögum í miðri andvöku yfir verkefninu sem ég er að vinna í þessa dagana í skólanum. Núna sit ég mettur eftir svaka steik, flösku af Coto de Imaz og reyna að koma hugsunum mínum í prent. Eða þannig.

Ég komst að því í verkefnavinnunni að ég væri mjög svo opinionated en mig vantaði rétta vél- og hugbúnaðinn í að koma öllu því sem kraumar í mér til skila. Takk fyrir það Addi, um leið og ég fæ tækifæri til, fæ ég mér eina svarta!

Í fyrrnefndu verkefni erum við 3 hugbúnaðarverkfræðinemar og 2 tölvunarfræðinemar að smíða stimpilklukkukerfi. Við erum búnir að skila forriti og skýrslu en munnlega prófið er á þriðjudaginn. Það sem ég fékk mest úr þessu verkefni er hversu mikilvæg greining og hönnun er fyrir hugbúnaðarverkefni. Skipulag á verkefnum er líka komið á gríðarlega háan stall.

Við þurftum líka að vinna með ASP.net. Það kom mér mjög á óvart hversu óhentugt það er fyrir forritara, t.d. ef data modelið passar ekki beint inni í datagrid eða eitthvað af controlunum sem boðið er upp á í Visual Studio. Ég bætti inn ReSharper frá snillingunum sem bjuggu til IntelliJ en það gerði dvöl mína í þessu umhverfi bærilega síðustu vikuna.

Að lokum vil ég þakka hópnum mínum fyrir góða tíma síðustu 3 vikurnar, ég hefði ekki getað lent í betri hóp. Þið vitið hverjir þið eruð.

Lag dagsins eiga töffararnir í Aerosmith, þeir vissu hvað þeir sungu. Hljómur dagsins er C#.

About Me

Árni Hermann Reynisson
Ég nem hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Ég vinn sem forritari hjá Hugsmiðjunni. Skoðanirnar sem birtast á síðunni eru mínar skoðanir og endurspegla ekki endilega skoðanir atvinnuveitanda míns. Takk fyrir innlitið.
View my complete profile

Greinar í tímaröð