Lesblindur á ensku
Skondið samtal á vinnustaðnum hennar Kollu:
Vinnufélagi: Ég á svo erfitt með að lesa nýju Harry Potter bókina. Kolla: Af hverju er það?
Vinnufélagi: Því ég er lesblind. Kolla: Ég hélt þú værir með talnablindu?
Vinnufélagi: Já, en allir sem eru með talnablindu eru með lesblindu líka. Kolla: Nei ég held það sé nú ekki rétt hjá þér.
Vinnufélagi: Ég er með svona spes lesblindu, ég er bara lesblind á ensku en ekki íslensku. Kolla: ????
Algjört met. Gæti ekki bara verið að vinnufélaginn sé bara léleg í ensku? Því spyr ég: Er hægt að vera lesblindur bara á ensku?
