Friday, August 31, 2007

Hey George Michael, where are you?

Glöggir lesendur taka sjálfsagt eftir að ég hef ekki komið með færslu allan ágúst mánuð enda hefur margt gengið á. Ég og Kolla erum flutt í námsmannaíbúð í Grafarholtinu sem við fengum í gegnum Byggingafélag námsmanna. Við fórum til Kaupmannahafnar í heimsókn til Björgvins og Elínar ásamt því að koma við hjá Gúnda og Hildi. Good times, þurfum að gera þetta miklu miklu oftar. Skólinn byrjaði án okkar því við vorum erlendis. Hugsmiðjan hélt grillpartí, frábær skemmtun. Fékk mér nettengingu hjá Símanum. Góður mánuður svona að flestu leyti.

Gúndi kom mér á bragðið með Arrested Development en Borgar var líka búinn að mæla með þáttunum og sérstaklega David Cross sem er að mínu mati fyndnasti gaur í heimi um þessar mundir. Get heldur betur mælt með þeim, algjörlega brilliant sjónvarpsefni. Nóg af röfli að sinni, ég lofa að vera duglegri að skrifa í september.

About Me

Árni Hermann Reynisson
Ég nem hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Ég vinn sem forritari hjá Hugsmiðjunni. Skoðanirnar sem birtast á síðunni eru mínar skoðanir og endurspegla ekki endilega skoðanir atvinnuveitanda míns. Takk fyrir innlitið.
View my complete profile

Greinar í tímaröð