Boing, going home
Jæja. Þá er JavaOne búið í bili. Frábær ráðstefna að öllu leyti nema einu. Það kom upp vírus, nánar tiltekið, norovirus sem er í rauninni bara magaflensa. Það var send út tilkynning á gesti ráðstefnunnar í gærmorgun sem sagði frá honum; að flestir sem fengu vírusinn væru liggjandi með hita, magakrampa, gubbupest og fleira í 1-2 daga. Ég kom upp á hótel í fyrrakvöld, dauðþreyttur, ákvað að panta mér mat af veitingastaðnum á hótelinu, samloku með beikon og einhverju drasli. Ég fékk svona bullandi magakrampa, netið virkaði ekki á hótelinu þannig ég gat ekki séð tilkynninguna og kenndi samlokunni um, sem auðvitað var blásaklaus. Sem betur var það ekki alvarlegra en það hjá mér, ég gæti trúað að áfengið sem Google gaf í Guice sessioninu sínu um kvöldið hafi bjargað mér.
Annars er ekkert merkilegt í fréttum. Fullt sem ég þarf að koma frá mér um ráðstefnuna, ég er bara svo þreyttur að ég kem því ekki upp úr mér. Þetta er búin að vera lengsta vika sem ég hef upplifað í langan tíma og ég sé ekki alveg fyrir endann á henni strax þar sem ferðalagið mitt til Íslands er í heildina hátt í einn og hálfan sólahring, hlakka ekki mikið til þess.
Veit einhver um eitthvað skemmtilegt að gera í NY í 12 tíma stoppi?

3 comments:
Mátt gera ráð fyrir að ferðalagið niður á Manhattan taki svona 60-90 min (AirTrain, subway, etc).
Mæli með Empire State og kaupa sér Audio túrinn. Munar geggjað miklu, þá er maður ekki bara að standa þarna uppi og horfa yfir New York eins og illa gerður hlutur heldur fær maður alveg ótrúlega skemmtilega innsýn inn í New York. Hljómar eins og það sé peningaskam að selja svona "audio only" talstöðvar með commentary en þetta er algjört brill.
Annars er Lion King á Broadway must show ef þú hefur tíma fyrir Broadway og svo dina á Olive Garden á Times Squares. Ekki prófa þessa "True New York Pizza" staði því það eru 10.000 af þeim sem allir segja það sama. Þannig að þú þarft að þekkja local til að benda þér á true new york pizzu.
Heimsókn í B&H Photo Video skilst mér að geti verið skemmtileg upplifun.
Takk fyrir tipsin. Því miður byrjaði ferðalagið mitt áður en ég náði að lesa þetta og endaði með að taka rútuna frá JFK niður á Port Authority og rölta um borgina í nokkrar klukkustundir.
Skoðaði Apple cube-inn o.fl. Mega nice borg, á pott þétt eftir að fara aftur, þá koma þessar ábendingar á góðum nótum.
Post a Comment