Wednesday, May 7, 2008

Little or no connectivity

Best að unga út einni færslu á meðan ég bíð eftir næsta sessioni á JavaOne

Búið að vera ansi strangt síðan ég mætti til San Francisco. Fór að sofa upp úr 2 í nótt og vaknaði rétt fyrir 7 í morgun eftir flugið. Þá tók við góð stund í að vera áttaviltur á þessu risa ráðstefnusvæði, ég vil gjarnan trúa að ég hafi ekki verið einn um það af yfir þeim 10.000 sem mættir eru.

Netið var til vandræða í morgun og ég var ekki einn um það eins og ég komst að þegar ég fór að kvarta yfir því. Við eitt af þjónustuborðunum stóð maður, skuggalega líkur Java pabbanum, frá Motorola að kvarta yfir því sama. Við röltum saman og leituðum að einhverjum sem vissi eitthvað um málið en okkur var vísað til og frá í hringi. Þegar við gáfumst upp settumst við niður í einu ráðstefnuplássinu með öllum sem voru að leika sér í tölvunum sínum, athuguðum hvort netið virkaði hjá þeim og af ca. 40 manns var einn tengdur en enginn hinna að kvarta eins og við, þolinmóðar sálir.

Einmitt þegar við vorum að setjast niður aftur þá röltir einn af æðstu mönnum hugbúnaðardeildar hjá Sun fram hjá okkur, við nefndum vandamálið við hann og stuttu seinna var netið komið í lag. Mjög fyndið, þar sem við gátum ekki nöldrað mikið hærra í hákarlakeðjunni hjá þeim.

Fyrir þá sem langar að vita hvaða session ég er búinn að sjá í dag geta lesið næstu línur....

  • Sun General Session Java + YOU
  • More "Effective Java"
  • Sun General Session Java-Centricity: Leveraging Java Technology at the hub of your Digital Life
  • Upcoming Java? Programming-Language Changes
  • GlassFish™ Project v3 as an Extensible Server Platform

Framundan eru svo GlassFish Application Server: Open Source, Fast, Easy and Reliable og Migrating to Maven 2 Demystified. Ég á síðan seinna meir, eftir að koma með einhverja samantekt á fyrirlestrunum sem mér fannst ómissandi.

2 comments:

StFS said...

Já ég öfunda þig smá... bara píííínu!

Vertu nú duglegur að blogga svo fyrst þú ert kominn í samband!

BR said...

Rubbin´ elbows with the super-nerds, eh?

Hljómar annars fjandi vel. Heyri í þér.

About Me

Árni Hermann Reynisson
Ég nem hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Ég vinn sem forritari hjá Hugsmiðjunni. Skoðanirnar sem birtast á síðunni eru mínar skoðanir og endurspegla ekki endilega skoðanir atvinnuveitanda míns. Takk fyrir innlitið.
View my complete profile

Greinar í tímaröð