A rabbi and a priest...
Mættur á JFK eftir leiðinlega langt flug frá Íslandi. Næsta flug verður yfir klukkustund lengra það fyrra. Frábært. Svo virkar síminn minn ekki hérna af einhverri ástæðu þannig ég keypti mér aðgang á WiFi-ið hérna og er að dúlla mér að lesa póstinn, twitter og readerinn og skrifa löngu tímabæra færslu í bloggið.
Svo sem frekar lítið að segja. Það var reyndar eitt frekar fyndið, þegar ég checkaði mig inn í flugið til San Francisco þá voru hátt í 30 rabbínar að checka sig inn á sama tíma. Þetta var í rauninni ekki haha-fyndið, meira svona aldrei-séð-áður-fyndið.
Var að vonast til að Sigurjón væri til í að leika leikinn "Leiðum túristann í gegnum New York" í bakaferðinni á sunnudaginn en hann verður því mjög svo miður kominn á skerið (í sumarfrí væntanlega).
Þangað til næst, hér kemur skrítlan sem ég notaði til að plata þig, lesandi góður, hingað inn...
A rabbi and a priest walk into a bar. Then a horse walks in. The bartender says: "Why the long face?"

2 comments:
Það er annað farsímakerfi á íslandi/evrópu en í USA. Held það sé 1800 MHz eða e-ð. *nörd*
Hey hvenær verðuru í NY á bakaleiðinni?
Var að koma frá Sigurjóni og er staddur í San Diego sem stendur og verð svona í kringum 3 vikur. Á flug heim 30. maí frá JFK veit ekki alveg hvað ég verð lengi í NY á bakaleiðinni.
Post a Comment