The rabbithole
Jæja. Dagur 1 löngu liðinn og ég vel hálfnaður með dag 2. Ég bætti við einu sessioni í gær Jersey: RESTful Web Services Made Easy og hætti við Migrating to Maven 2 Demystified þegar 15 mínútur voru liðnar og fyrirlesarinn byrjaði að útskýra hvað <scope> þýðir. Fyrir ykkur hin sem vita ekkert hvað ég er að tala um...
Anywho. Ég fór í eBay invite only partí uppi á svölum á hóteli sem þeir leigðu, mjög flott. Það var reyndar vitlaust kynnt hjá þeim. Þetta átti auðvitað að vera eBay invite only recruiting partí. Ég hitti gæja þar sem spjallaði aðeins við mig um hvað ég væri að gera. Í lokin á spjallinu bætti ég við að ég væri í skóla líka og þá sagði hann mér að koma að vinna fyrir eBay þegar ég færi í master nám því þeir borguðu námið fyrir mann. Á þeim tímapunkti fór mann að gruna að þetta var ekki bara matur og vín eins og lofað var.
Jæja. Næsta session bíður, skjáumst.

0 comments:
Post a Comment